
Jæja nú er ég að vinna á laugardagskveldi og vona að ég fái að fara snemma heim því ég er ekki alveg búin að pakka niður:) En svo fer ég bara um hádegið á morgun upp á flugvöll:) vííí....
Þannig að við sjáumst bara;)

En nú eru aðeins 2 dagar í að ég fari í sólina á Lanzarote, og ég er eiginlega að spá í að fara bara að pakka á eftir:) Ég læt nokkrar myndir fylgja með af hótelinu sem ég verð á;)

Já eins og flestir vita, þá komst Ísland enn og aftur ekki inn í aðalkeppni Eurovision!!! En ef þetta á að halda áfram að vera svona með símakosningu í forkeppninni, þá mun Ísland sennilega aldrei ná að komast upp úr forkeppninni!!! Þessi austurlönd standa svo saman í þessu og ætla gjörsamlega að skipta sigrinum á milli sín hvert ár. Og einnig er það vel séð að meiri hluti þessarra "austurlanda" hafa ekkert með að gera í Eurovision, þar sem að þau nenna ekki að eyða meira en 5 mín í að semja lag liggur við, þessi Súru lög, ég hélt ég myndi andast úr hlátri og ógeði!!! Yeeaaahhhh Push the Button!!! Já ég held að það þyrfti að
fá einhverja Eurovision fagmenn í það starf að vera bara dómarar í þessarri blessuðu forkeppni. Áfram dómarar!!!! En þar sem að Íslendingar eiga ekki leik þetta árið, hugsa ég að ég muni styðja Þjóðverja í ár, mér finnst lagið frá þeim vera æði:)